Ferill 173. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 173 . mál.


303. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Húnboga Þorsteinsson og Sesselju Árnadóttur frá félagsmálaráðuneyti. Þá komu til fundar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Þórður Skúlason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
    Í frumvarpinu er lagt til að sömu reglur gildi um stofn til álagningar á sumarhús og nú gilda um útihús í sveitum. Stofn til álagningar fasteignaskatts á sumarhús verður þá fasteignamat þeirra. Jafnframt verði hætt að umreikna matsverð sumarhúsa til markaðsverðs sambærilegra eigna í Reykjavík. Þá er í frumvarpinu lagt til að í lögunum komi skýrt fram að sveitarstjórnir hafi sams konar heimildir til að undanþiggja sumarhús álagi á fasteignaskatt skv. 4. mgr. 3. gr. laganna og gilda um aðrar fasteignir í dreifbýli.
    Í vor var gengið frá samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um kostnaðar- og tekjutilfærslu vegna flutnings grunnskólans til sveitarfélaga og í framhaldi af því gerðar breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Frá því að umrætt samkomulag var gert hafa forsendur um lífeyrissjóðsskuldbindingar breyst. Kostnaður sveitarfélaga við að standa skil á lífeyrissjóðsskuldbindingum grunnskólakennara mun aukast og verða 225 millj. kr. umfram það sem áður var vegna væntanlegra breytinga á lögum um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins. Því hefur verið gert viðbótarsamkomulag milli ríkis og sveitarfélaga varðandi flutning tekna frá ríki til sveitarfélaga. Í ljósi þessa leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til á sérstöku þingskjali. Þar er miðað við að útsvarshlutfall verði hækkað um 0,09% til viðbótar því sem þegar er kveðið á um. Í framangreindu viðbótarsamkomulagi er síðan gert ráð fyrir samsvarandi lækkun á tekjuskattshlutfalli. Þá er lagt til að fyrirsögn frumvarpsins verði breytt þar sem ákvæði 1. og 6. gr. laga nr. 79/1996, sem breyttu í vor lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, munu ekki taka gildi fyrr en 1. janúar 1997 og 1. janúar 1998.
    Kristín Ástgeirsdóttir og Rannveig Guðmundsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 10. des. 1996.



Siv Friðleifsdóttir,

Einar K. Guðfinnsson.

Magnús Stefánsson.


varaform., frsm.



Arnbjörg Sveinsdóttir.

Pétur H. Blöndal.

Kristján Pálsson.



Sigríður Jóhannesdóttir.