Ferill 121. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 121 . mál.


365. Nefndarálit



um frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og var umfjöllun hennar með svipuðu sniði og undanfarin ár. Formaður og einn nefndarmanna fóru yfir þær umsóknir um ríkisborgararétt sem nefndinni bárust í því skyni að kanna hvort þær uppfylltu þau skilyrði sem allsherjarnefnd hefur sett fyrir veitingu ríkisborgararéttar, sbr. þskj. 723 á 118. löggjafarþingi. Síðan fjallaði nefndin um umsóknirnar.
    Við afgreiðslu á frumvarpinu hefur nefndin haft að leiðarljósi fyrrgreindar reglur um veitingu ríkisborgararéttar. Umsóknir sem ekki hljóta afgreiðslu nú bíða þar til síðara frumvarpið um ríkisborgararétt verður afgreitt á vorþingi, en þá koma óafgreiddar umsóknir aftur til skoðunar.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Þar er lagt til að 53 einstaklingar fái íslenskan ríkisborgararétt.

Alþingi, 13. des. 1996.



Sólveig Pétursdóttir,

Valgerður Sverrisdóttir.

Jóhanna Sigurðardóttir.


form., frsm.



Árni R. Árnason.

Ögmundur Jónasson.

Kristján Pálsson.



Vigdís Hauksdóttir.

Hjálmar Jónsson.

Guðný Guðbjörnsdóttir.