Ferill 108. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 108 . mál.


1099. Nefndarálit


um frv. til l. um breyt. á l. um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990, með síðari breytingum.

Frá sjávarútvegsnefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og bárust henni umsagnir um það frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Fiskifélagi Íslands, Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Landssambandi smábátaeigenda, Samtökum iðnaðarins, Sjómannasambandi Íslands og Vélstjórafélagi Íslands.
    Á fundi nefndarinnar 22. apríl sl. gerði Árni Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, grein fyrir því að sjávarútvegsráðherra hefði nú í febrúar skipað starfshóp til að fjalla um endurnýjunarreglur fiskiskipa. Í ljósi þess telur sjávarútvegsnefnd rétt að fela þeim starfshópi að skoða vel þær breytingar sem frumvarpið felur í sér og leggur því til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Alþingi, 6. maí 1997.


Steingrímur J. Sigfússon,

Árni R. Árnason.

Stefán Guðmundsson.

form., frsm.


Guðmundur Hallvarðsson.

Hjálmar Árnason.

Vilhjálmur Egilsson.


Sighvatur Björgvinsson.

Einar Oddur Kristjánsson.

Lúðvík Bergvinsson.