Ferill 303. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 303 . mál.


1161. Nefndarálit



um till. til þál. um tilkynningarskyldu olíuskipa og annarra skipa sem sigla með hættulegan varning.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og farið yfir umsagnir sem bárust um það á 120. þingi frá Siglingastofnun Íslands, Hollustuvernd ríkisins, Olíuverslun Íslands hf., Sambandi íslenskra kaupskipaútgerða, Farmanna- og fiskimannasambandinu, Vélstjórafélaginu, Náttúruverndarráði, Slysavarnafélagi Íslands, Olíufélaginu hf., Sjómannasambandinu, umhverfisráðuneytinu, Skeljungi hf., Landhelgisgæslunni og Landssambandi íslenskra útvegsmanna.
    Nefndin leggur til að ríkisstjórninni verði falið í samráði við hagsmunaaðila, m.a. Siglingastofnun Íslands, olíufélög og skipafélög, að móta skýrar reglur um tilkynningarskyldu olíuskipa og annarra skipa sem sigla með hættulegan varning. Þá verði fellt brott ákvæði tillögunnar um að sett verði skýr ákvæði er banna öllum skipum losun á „ballest“ nema í ákveðinni, tiltekinni fjarlægð frá landi (eða á ákveðnu dýpi). Með hliðsjón af upplýsingum sem fram hafa komið er ekki talin nauðsyn á sérstökum ákvæðum hér á landi um bann við losun á sjókjölfestu, „ballest“, umfram ákvæði svokallaðrar MARPOL-samþykktar sem Ísland er skuldbundið til að framfylgja.
    Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar með svohljóðandi

BREYTINGU:

    Tillögugreinin orðist svo:
    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni, í samráði við hagsmunaaðila, að móta skýrar reglur um tilkynningarskyldu og afmörkun siglingaleiða olíuskipa og annarra skipa sem sigla með hættulegan varning inn í íslenska efnahagslögsögu sem m.a. innihaldi heimildir til tafarlausrar stöðvunar ef vart verður mengunar. Reglurnar nái einnig til olíuskipa í siglingum milli hafna hér á landi.
    Jafnframt verði mótaðar reglur um hvaða ráðuneyti og stjórnvöld fari með forræði um allar aðgerðir sem grípa þarf til ef mengunarslys verða á sjó eða við strendur landsins.

    Kristín Halldórsdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu.
    Kristján Pálsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 9. maí 1997.



Einar K. Guðfinnsson,

Magnús Stefánsson.

Egill Jónsson.


form., frsm.



Stefán Guðmundsson.

Ragnar Arnalds.

Árni Johnsen.



Guðmundur Árni Stefánsson.

Ásta R. Jóhannesdóttir.