Kjaradeila sérfræðinga sem starfa utan sjúkrahúsa

Þriðjudaginn 27. janúar 1998, kl. 13:51:20 (3021)

1998-01-27 13:51:20# 122. lþ. 52.1 fundur 165#B kjaradeila sérfræðinga sem starfa utan sjúkrahúsa# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur

[13:51]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Við erum alveg sammála, ég og hv. þm., um það atriði að útilokað er að semja við aðila sem gera jafnmiklar kröfur og hér hefur komið fram, allt upp í 200% hækkun. Þess vegna hefur gengið hægar en skyldi að semja. En menn eru komnir nær raunveruleikanum í dag en þegar fyrstu kröfur voru uppi.