Mengun frá Sellafield

Þriðjudaginn 27. janúar 1998, kl. 14:10:43 (3036)

1998-01-27 14:10:43# 122. lþ. 52.1 fundur 168#B mengun frá Sellafield# (óundirbúin fsp.), umhvrh.
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur

[14:10]

Umhverfisráðherra (Guðmundur Bjarnason):

Ég vil árétta að ég hef ekki fjallað sérstaklega um fjárveitingar til Geislavarna ríkisins en það mál var hins vegar rætt á fundi mínum með forstöðumanni stofnunarinnar. Við ræddum um hvað til þyrfti að koma og væntanlega hefur hann gert sínu ráðuneyti frekari grein fyrir því.

Ég hef fyrirhugað að sækja þennan fund OSPAR-ríkjanna síðar á árinu.