Þjónustugjöld í heilsugæslu

Þriðjudaginn 27. janúar 1998, kl. 19:08:09 (3102)

1998-01-27 19:08:09# 122. lþ. 52.9 fundur 41. mál: #A þjónustugjöld í heilsugæslu# (breyting ýmissa laga) frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur

[19:08]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vildi gjarnan fá að sjá umræddar tillögur áður en ég tjái mig um þær á hinu háa Alþingi. Hv. þm. er með fullyrðingar sem ég hef hvergi séð skjalfestar. Hv. þm., eins og ég kom inn á áðan, veit trúlega meira en aðrir hér í þingsalnum.