Þjónustugjöld í heilsugæslu

Þriðjudaginn 27. janúar 1998, kl. 19:22:46 (3109)

1998-01-27 19:22:46# 122. lþ. 52.9 fundur 41. mál: #A þjónustugjöld í heilsugæslu# (breyting ýmissa laga) frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur

[19:22]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vildi óska þess að hv. þm. gæfi sér tíma til að hitta mig innan tíðar og við færum yfir þetta. Ég er alveg viss um að við gætum fundið samkomulagsleið einmitt í þeirri leið sem ég var áðan að tala um. Það er of stuttur tími til að fara nánar út í þetta hér en ég er alveg viss um að hann fyndi samkomulagsflöt á þessari leið.