Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Við hv. þm. Jón Kristjánsson höfum átt ágætt samstarf í sambandi við vegamál í kjördæminu eins og gildir með fáum undantekningum um þingmenn Austurlands og miðað við þann fjárlagaramma sem hefur verið við að fást hverju sinni sem ríkisstjórn hefur markað eins og við þekkjum. Út af fyrir sig sýnist mér sú aðferð sem hér er upp tekin, sem er kannski ekki mjög auðveld til samanburðar, vera heldur til bóta hvað varðar hinar almennu framkvæmdir sem blasa við í kjördæmi okkar.
Ég er alveg sammála hv. þm. um að auðvitað hljótum við þingmenn Austurlands sem aðrir að hugsa til jarðgangagerðar þó ekki sé bjartara yfir þeim málum en raun ber vitni og ekki ætla ég að skorast undan því að eiga hlut að því máli. En er ekki heldur dapurlegt að standa hér árið 1998, og miðað við þær áætlanir sem liggja fyrir væri það fyrst eftir 2010, að 12 árum liðnum, og miðað við þá bjartsýni yrði byrjað fljótlega á framkvæmdum eftir að því langtímaáætlunartímabili lyki? Þetta segi ég með fullri virðingu fyrir vilja hv. þm. í þessum efnum en Framsfl. er núna aðili að ríkisstjórn með Sjálfstfl. og hefur skrifað upp á þá áætlunargerð. Ég tel það vera undrunarefni að jarðgangaframkvæmdir skuli lagðar til hliðar á þann hátt sem hér blasir við. Og þó að menn séu að nefna eitthvað hugsanlega og ef o.s.frv. í því sambandi, þá er þetta það sem við lesum úr þeim plöggum.