Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Ég minnist þess að hv. þm. Alþfl. komu með einhverja sýndartillögu fyrir jólin um að setja 23 milljónir í tvöföldun Reykjanesbrautarinnar. Hvers lags sýndarmennska er það að ætla 23 milljónir í tvöföldun á braut sem mun kosta 2,4 milljarða? Á sama tíma var verið að byggja upp ábyrga áætlunargerð sem gerði ráð fyrir því að hægt væri að ljúka þessari framkvæmd á ákveðnum tíma. Eins og ég sagði áðan, hv. þm., að koma slíkri framkvæmd á áætlun er í raun forsenda þess að hægt sé flýta og fjármagna framkvæmdir með öðrum hætti en þeim sem kemur fram á blaðinu. Þetta er gríðarlegt skref og ég tel að menn geti með fullri virðingu fyrir þessari tillögu frá hv. þm. áttað sig á því að þar var einungis verið að reyna að koma af stað moldviðri. Þ.e. tilraun til að gefa þingmönnum Alþfl. skárri stöðu í Reykjanesi. Þeir gætu þá sagt okkur hafa verið á móti tillögunni, aðra þingmenn kjördæmisins sem styðja ríkisstjórnina. Auðvitað sjá allir í gegnum svona málflutning. Hann virkaði sem betur fer ekki enda vilja kjósendur sjá ábyrg vinnubrögð hvað þetta varðar og getað trúað því að staðið verði við það sem um er talað. (ÁRJ: Eins og vinnubrögð Sjálfstfl.) Já.