Rannsókn á störfum fíkniefnadeildar lögreglunnar

Mánudaginn 02. febrúar 1998, kl. 16:58:20 (3283)

1998-02-02 16:58:20# 122. lþ. 56.3 fundur 92. mál: #A rannsókn á störfum fíkniefnadeildar lögreglunnar# beiðni um skýrslu frá dómsmrh., Forseti RA
[prenta uppsett í dálka] 56. fundur

[16:58]

Forseti (Ragnar Arnalds):

Forseti vill af þessu tilefni taka undir orð hv. 5. þm. Reykn., Rannveigar Guðmundsdóttur, að það gildir almennt um allar umræður í þinginu að sá sem á seinasta orðið verður að gæta hófs. Það ættu allir hv. þm. að hafa í huga í umræðum á Alþingi.