Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Hæstv. ráðherra segir að lög heimili ekki að rannsóknargögn skuli birt en rannsókn í málinu er lokið. Í skýrslunni sem er til umræðu finnst mér hæstv. ráðherra vitna í rannsóknargögnin sem slík. Það kemur fram hvað eftir annað í skýrslunni að verið er að vitna í þessi rannsóknargögn. Mér finnst það því ekki halda sem hæstv. ráðherra segir og það hlýtur að skipta máli hvort rannsókn sé lokið eða ekki þegar verið er að fjalla þannig um málið.
Aðalatriðið er þetta: Getur Alþingi fengið eðlilegan aðgang að skýrslum sem skipta máli við umfjöllun máls á Alþingi? Það hefur alls ekki verið hægt samkvæmt því sem við höfum verið að ræða hér. Samkvæmt ákvæði 26. gr., sem ég mun vitna til í fyrramálið á fundi allshn., getur þingnefndin auðvitað tekið upp mál sem er til umfjöllunar á Alþingi og hefur birst í þskj. 685 og hefur fulla heimild til þess að fjalla um málið og gefa Alþingi skýrslu um það. Ég mun láta á það reyna hvort hin sérstaka þingnefnd, allshn., getur fengið þá skýrslu sem hefur verið kallað eftir.