Guðni Ágústsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég rakti áðan þá framfarabraut sem íslenskur landbúnaður er á og ég tel að íslenskir neytendur eigi samleið með íslenskum landbúnaði. Ég sagði frá því að við náðum GATT-málinu fram og buðum íslenskum bændum sömu aðstæður og keppinautum þeirra. Við endurbættum sauðfjársamninginn. Nú er nýgerður mjólkursamningur. Við erum búin að endurskipuleggja lánasjóðinn og hér er nýtt mál að koma fram. Það er verið að gefa bændum þau tækifæri sem þeir hafa beðið eftir. Ég er sannfærður um að sú mikla málefnavinna sem Framsfl. og Sjálfstfl. hafa staðið að á þessu tímabili og viðurkennt um leið að var mikilvæg fyrir íslenskan landbúnað er að skila sér og mun skila sér á næstu árum, bæði í betri afurðum, sterkari bændum og kannski í þeim möguleika, sem ég minntist á, að nú eiga menn orðið möguleika á að flytja út íslenskar úrvalsvörur. Ég læt mér fátt um finnast þó að Alþfl. hafi sinn hátt á þótt ég finni þar fyrir hjá einstaka manni eins og hv. þm. oft og tíðum góðum vilja þá átta ég mig ekki á hver sá vilji er. Mér finnst hann vera enn gamla kratagrýlan að reyna að búa til vont fólk úr framsóknarmönnum, reyna að gera vont fólk úr íslenskum bændum sem standi gegn hagsmunum neytenda. Þetta er ómerkilegasti áróður sem fram hefur farið í íslenskum stjórnmálum í þrjá áratugi og því miður ætlar hann að endast krötunum fram á næstu öld. Ég harma þá niðurstöðu.