Framhald umræðu um fæðingarorlof

Miðvikudaginn 04. febrúar 1998, kl. 15:54:56 (3422)

1998-02-04 15:54:56# 122. lþ. 59.92 fundur 194#B framhald umræðu um fæðingarorlof# (um fundarstjórn), JóhS
[prenta uppsett í dálka] 59. fundur

[15:54]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Vegna þess sem ég vildi koma á framfæri áðan þegar ég bað um orðið um stjórn fundarins þá var ég alls ekki að gagnrýna hæstv. ráðherra því að ég skil mætavel að hún láti ekki duga að svara þeim viðamiklu spurningum sem komu fram í máli mínu í stuttu andsvari. Fyrr má nú vera. Ég heyri á orðum hæstv. ráðherra að hún er mér sammála um að biðja um góðan tíma til þess þegar við fáum næst tækifæri til að ræða málið.