Framhald umræðu um fæðingarorlof

Miðvikudaginn 04. febrúar 1998, kl. 15:55:33 (3423)

1998-02-04 15:55:33# 122. lþ. 59.92 fundur 194#B framhald umræðu um fæðingarorlof# (um fundarstjórn), GGuðbj
[prenta uppsett í dálka] 59. fundur

[15:55]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur áðan. Þetta er þriðji eða fjórði dagurinn sem málið er á dagskrá og það er alltaf sett síðast á dagskrá og aldrei tekst að ljúka því. Hér er um stórmál að ræða og ég vil taka undir þá ósk að málið verði sett framarlega á dagskrá einhvern allra næstu daga og að hæstv. ráðherra verði viðstödd. Ég vil t.d. vekja athygli á því að það mál sem var rétt áðan til umræðu var líka framhald fyrri umræðu og hefur hærra númer en frv. um fæðingarorlof.