Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Það er aðeins örstutt. Þetta er góðra gjalda vert sem hér kemur fram. Ég skil það vel að hæstv. ráðherra velji þann kost að viðurkenna ekki með öllu að hafa haft rangt fyrir sér. Það er mannlegt. En jafnljóst er það að þetta liggur hér fyrir sem hans tillaga að breyta til. Skörunin og ósamræmið var augljóst öllum sem lásu málið og auðvitað hefur hæstv. ráðherra komist að sömu niðurstöðu um það efni.