Ólafur Þ. Þórðarson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég vil þakka forseta fyrir að hafa úrskurðað um það hvaða mál er á dagskrá. Það var mjög þarft að fá það á hreint. Jafnframt vænti ég þess að forseti sjái til þess að það mál fáist rætt áður en önnur mál eru tekin á dagskrá.