Þjóðlendur

Fimmtudaginn 05. febrúar 1998, kl. 14:44:22 (3483)

1998-02-05 14:44:22# 122. lþ. 60.2 fundur 367. mál: #A þjóðlendur# frv., SF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur

[14:44]

Siv Friðleifsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég var eini þingmaðurinn sem kom fram með þessa skoðun mína mjög skýrt, bæði í þingflokknum og á opinberum vettvangi þannig að ég býst við því að það hafi verið það sem hæstv. félmrh. átti við. Hins vegar urðu ansi líflegar umræður um þetta mál í þingflokki framsóknarmanna og við ræddum málið fram og til baka en ég er ekki viss um að hæstv. félmrh. hafi skoðað fundargerðabækurnar eftir fund okkar og skoðað nákvæmlega hvort einhverjir voru með bókaða fyrirvara en mér er kunnugt um að svo var.