Þjóðlendur

Fimmtudaginn 05. febrúar 1998, kl. 14:58:36 (3486)

1998-02-05 14:58:36# 122. lþ. 60.2 fundur 367. mál: #A þjóðlendur# frv., PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur

[14:58]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svör hans. Ég hafði reyndar gert mér grein fyrir því að ákveðin takmörkun væri á eignarhaldi ríkisins en ég legg samt sem áður áherslu á það að hv. allshn., sem fær þetta frv. til skoðunar eða önnur nefnd sem kannski er ekki búið að ákveða, skoði mjög nákvæmlega hvað felst í því að ríkið eigi allt hálendið.