Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Við erum að ræða um eignarhald á þjóðlendum á hálendinu, við erum ekki að ræða um skipulagsmál. Þess vegna kom ég ekki meira inn á það í ræðu minni en ég gerði. Hins vegar mun ég leitast við að svara hv. þm. óundirbúið því að við erum ekki að ræða það mál. Ef þjóðin byggi öll í þeim sveitarfélögum sem ná að hálendinu hefði ég minni efasemdir um að þau skipulegðu þetta. Hins vegar tek ég undir það sem hæstv. forsrh. gat áðan um í andsvari að ekkert í frv. kemur t.d. í veg fyrir að hálendið yrði gert að einu sveitarfélagi. (Gripið fram í: Ef allir byggju þarna hverjir aðrir ættu þá að skipuleggja það?) Einmitt.