Ólafur Örn Haraldsson:
Herra forseti. Þetta er ábyggilega rétt sem hæstv. félmrh. segir hér. Fyrirvari minn var bókaður þegar málið var sýnt þingflokki framsóknarmanna, ekki 4. eða 5. nóvember því ég var ekki þeim fundi. En málið var kynnt á þinginu fyrr á árinu, vorþinginu, og þá kom þessi fyrirvari minn fram. Þannig að báðir hafa rétt fyrir sér um þetta efni.