Sighvatur Björgvinsson:
Virðulegi forseti. Hv. stjórnarsinnar láta í veðri vaka að við stjórnarandstæðingar viljum koma í veg fyrir þinglega meðferð málsins. Málið er þegar komið til þinglegrar meðferðar. Því hefur verið dreift á Alþingi og þingleg meðferð þess er hafin og fer eftir eðlilegum reglum um þinglega meðferð mála.
Hins vegar er stundum brugðið út af hefðbundnum reglum. Í fyrsta lagi ef samstaða er um mál eru gjarnan veitt afbrigði til þess að flýta meðferð þess í gegnum þingið. Í öðru lagi er það líka gert þótt ekki sé samstaða um efnisleg atriði máls ef samstaða er um að það þurfi að hraða viðkomandi lagasetningu eins og kostur er.
Ekki er samstaða um efnisleg atriði málsins og það er heldur ekki samstaða um að það þurfi að taka það svo hratt til 1. umr. að hagsmunaaðilum gefist ekki eðlilegt færi á að tjá sig. Þess vegna velur stjórnarandstaðan að veita málinu ekki flýtimeðferð til 1. umr. en stjórnarandstaðan styður þinglega meðferð málsins. Hún hefur ekkert á móti því að málið fái eðlilega þinglega umfjöllun. Sú umfjöllun hófst um leið og málinu var dreift til þingmanna og sú þinglega meðferð mun halda eðlilega áfram eins og þingleg meðferð flestra annarra mála er á Alþingi Íslendinga. Það er því ósatt að stjórnarandstaðan sé að koma í veg fyrir eðlilega þinglega meðferð málsins.