Framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna

Þriðjudaginn 10. febrúar 1998, kl. 13:50:24 (3574)

1998-02-10 13:50:24# 122. lþ. 63.1 fundur 376. mál: #A framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna# þál., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur

[13:50]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég treysti félmrn. prýðilega til þess að fara með þessi mál og sé ekki að þeim væri betur skipað með öðrum hætti. Ég myndi a.m.k. sakna þess mjög ef þessi málaflokkur hyrfi frá félmrn. í minni tíð því að mér hefur fundist verulega gaman að vinna að þessum málum. Það er margt ógert og það eru mörg verkefni sem er áhugavert að vinna að. Ég mun ekki hafa neitt frumkvæði að því að breytt verði verkefnaskiptingu ráðuneytanna í þessu efni. Eins og ég sagði áðan þá tel ég að þau séu best komin hjá félmrn.