Framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna

Þriðjudaginn 10. febrúar 1998, kl. 14:59:28 (3593)

1998-02-10 14:59:28# 122. lþ. 63.1 fundur 376. mál: #A framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna# þál., KÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur

[14:59]

Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að við hv. þm. Einar Guðfinnsson ættum að leggja saman kraftana í félmn. og leggja til að þessi áætlun verði styrkt, hvað þetta atriði varðar. Hér er komið inn á styrki til atvinnusköpunar úti á landsbyggðinni. Ég held að til þess að þeir styrkir hafi eitthvert gildi og að menn geti gripið til aðgerða til þess að sporna við miklum flutningum fólks, ef það er viljinn, þá þurfi einmitt slík kyngreind könnun að liggja fyrir og væri fróðlegt að kalla eftir þeim upplýsingum frá Byggðastofnun.