Framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna

Þriðjudaginn 10. febrúar 1998, kl. 16:50:49 (3611)

1998-02-10 16:50:49# 122. lþ. 63.1 fundur 376. mál: #A framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna# þál., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur

[16:50]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef ekki fullmótaðar hugmyndir um það og ég er mjög þakklátur fyrir ráðleggingar og góðar ábendingar í þessu efni. Þetta er verk sem ég tel að þurfi að vinna. Ég tel mjög mikilvægt að reyna að ná betri tökum á þessu og af því leiði annað sem léttir okkur viðfangsefnið en út af fyrir sig eru hugmyndir ekki fullmótaðar þar um.

Varðandi spurninguna um utanrrn. skilst mér að í aðgerðaáætlun utanrrn. sé tekið á þessu máli en það getur vel verið að ástæða sé til þess að hnykkja á því í nefndarstarfinu í félmn., a.m.k. að kanna hvort gengið er eðlilega frá þessu.