Framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna

Þriðjudaginn 10. febrúar 1998, kl. 17:02:34 (3619)

1998-02-10 17:02:34# 122. lþ. 63.1 fundur 376. mál: #A framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna# þál., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur

[17:02]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Eins og ég sagði áðan þá ætla ég ekki að ræða málefni eða niðurstöður Samkeppnisstofnunar eða hvar mér finnst að henni hafi verið mislagðar hendur. Ég get upplýst að mér finnst að úrskurður hennar um að Osta- og smjörsölunni bæri að selja dýrar til minni verslana og á lægra verði til Bónuss og Hagkaups, ekki eðlilegur úrskurður.