Atvinnuleysi kvenna

Miðvikudaginn 11. febrúar 1998, kl. 14:25:33 (3662)

1998-02-11 14:25:33# 122. lþ. 64.2 fundur 411. mál: #A atvinnuleysi kvenna# fsp. (til munnl.) frá félmrh., GGuðbj
[prenta uppsett í dálka] 64. fundur

[14:25]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þessa fyrirspurn því að það er svo sannarlega áhyggjuefni hve atvinnuleysi kvenna er mikið. Ég vil í framhaldi af svari hæstv. félmrh. um ástandið á Norðurl. v. spyrja hann hvort hann telji ekki að atvinnustefna ríkisstjórnarinnar skýri að hluta til hve atvinnuleysi kvenna er mikið á því svæði og þar á ég bæði við áherslu ríkisstjórnarinnar á stóriðju og hins vegar á þróunina í sjávarútvegsmálum. Og ef svo er, hvort hann eða ríkisstjórnin fyrirhugi átak í atvinnumálum kvenna í þessu kjördæmi eða almennt.