Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Þetta voru mjög athyglisverð svör hjá hæstv. ráðherra og eru þess eðlis að það þarf að kryfja þau miklu meira og ræða þau betur á Alþingi en við höfum tíma til nú. Það er alveg ljóst að hagræðing og kröfur hafa aukist og það hefur komið niður á konum og langtímaatvinnulausum. Ég held það sé staðfest af ráðherra. Það kemur líka fram að átaksverkefnin sem voru mjög mikið í gangi á árum áður, og sem ekki eru í gangi núna, hafa verulega skilað sér á þeim tíma og greinilegt að þau eiga fullan rétt á sér áfram miðað við þessar tölur sem hér eru settar fram.
Hér stöndum við frammi fyrir því að langtímaatvinnuleysi, þ.e. atvinnuleysi í sex mánuði eða lengur, hefur meira en tvöfaldast á nokkurra ára tímabili og hið sama gildir um atvinnuleysi í eitt ár eða lengur, að það hefur meira en tvöfaldast á tiltölulega skömmu árabili.
Það er alveg ljóst að við þurfum að grípa til töluvert víðtækra aðgerða til að koma í veg fyrir langtímaatvinnuleysi. Víða erlendis er gripið til margvíslegra og fjölbreyttra aðgerða til að koma í veg fyrir langtímaatvinnuleysi hjá fólki. Hæstv. ráðherra nefnir vissulega nokkra þætti sem er verið að vinna að til að fyrirbyggja langtímaatvinnuleysi, en ég held við þurfum að gera betur. Og ég spyr: Er langtímaatvinnuleysi kannski meira en hæstv. ráðherra nefnir hér? Ég nefni tölur sem komu nýlega fram á Alþingi um að öryrkjum hafi fjölgað á tíu ára tímabili úr 3.456 í 7.834, eða meira en tvöfaldast og Hæstv. heilbrrh. skýrir þannig þessa miklu fjölgun öryrkja sem hefur meira en tvöfaldast, með leyfi forseta:
,,Mestu skiptir að atvinnuleysi jókst mjög á tímabilinu sem varð til þess að öryrkjar áttu erfiðara með að fá vinnu og ýmsir misstu vinnu sína. Við það jókst ásókn í örorkubætur, m.a. vegna fyrirkomulags á greiðslu atvinnuleysisbóta, biðtíma o.fl.``
Þetta segir mér að langtímaatvinnuleysi sé meira og þeir sem eru raunverulega atvinnulausir séu í raun fleiri og að Tryggingastofnun hafi kannski beitt meira félagslegum úrræðum (Forseti hringir.) og tekið við fólki sem hefur ekki fengið vinnu á atvinnumarkaðnum.