Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst eðlilegt vinnulag að doka við eftir því að framkvæmdaáætlunin verði afgreidd áður en farið er að vinna að einstökum verkefnum sem þar eru tilgreind, þ.e. með auknum þrótti. Auðvitað eru mörg þeirra þegar í gangi. Afgreiðslan fer væntanlega fram í mars eða í fyrri hluta apríl þannig að nokkurt svigrúm gefst til að vinna að málinu.
Það er alveg rétt að ég útskýrði ekki í smáatriðum hvernig námsefni yrði háttað. Það er vegna þess að ekki er búið að ákveða það. Það hefur engin ákvörðun verið tekin nákvæmlega um það hvernig þetta verkefni verður unnið í smáatriðum. Ég er ekkert viss um að við bindum okkur við sænska módelið þó að við höfum það sennilega til hliðsjónar að einhverju leyti.