Réttarstaða barna til umgengni við báða foreldra sína

Fimmtudaginn 12. febrúar 1998, kl. 16:11:12 (3785)

1998-02-12 16:11:12# 122. lþ. 66.10 fundur 173. mál: #A réttarstaða barna til umgengni við báða foreldra sína# þál., Flm. ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur

[16:11]

Flm. (Ásta R. Jóhannesdóttir) (andsvar):

Herra forseti. Mér var ekki kunnugt um þessa nefndarskipan hæstv. dómsmrh. en fagna því ef sú miklivæga vinna sem lögð er til í þessari þáltill. er farin af stað. Ég efast ekki um að þegar þetta mál kemur til umfjöllunar í allshn. þá komist menn að þeirri niðurstöðu að þessi samantekt og grg. till. gæti komið að gagni í þeirri nefnd sem þegar hefur hafið þessa vinnu. Þá væri eðlilegt að þessari till. yrði vísað til ríkisstjórnarinnar ef hún er örugglega á verksviði nefndarinnar. Ég vissi ekki að þessi vinna væri farin í gang í ráðuneytinu.