Réttarstaða barna til umgengni við báða foreldra sína

Fimmtudaginn 12. febrúar 1998, kl. 16:12:56 (3787)

1998-02-12 16:12:56# 122. lþ. 66.10 fundur 173. mál: #A réttarstaða barna til umgengni við báða foreldra sína# þál., dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur

[16:12]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):

Herra forseti. Það var óskað eftir því við nefndina að hún hraðaði störfum svo sem kostur væri. Henni voru ekki sett dagsett mörk í þeim efnum. Ég vona að ekki líði á löngu þar til niðurstöður hennar liggja fyrir en á þessari stundu get ég ekki greint frá því nákvæmlega hvenær það verður.