Dýralæknar og heilbrigðisþjónusta við dýr

Fimmtudaginn 12. febrúar 1998, kl. 17:34:58 (3800)

1998-02-12 17:34:58# 122. lþ. 66.13 fundur 436. mál: #A dýralæknar og heilbrigðisþjónusta við dýr# (heildarlög) frv., Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur

[17:34]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti hlustar á þessar athugasemdir hv. þm. en vill þó vekja á því athygli að 17 hv. þingmenn eru í húsinu og eru væntanlega að fylgjast með umræðum þó að þeir hafi kosið að taka ekki þátt í þeim að þessu sinni.