Íþróttalög

Föstudaginn 13. febrúar 1998, kl. 11:38:40 (3814)

1998-02-13 11:38:40# 122. lþ. 67.3 fundur 447. mál: #A íþróttalög# (heildarlög) frv., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur

[11:38]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir frv. sem ég tel allrar athygli vert um leið og ég læt í ljós ánægju mína með þá ábendingu hæstv. menntmrh. að menntmn. taki til umfjöllunar samhliða frv. nýlegar skýrslur um konur og íþróttir. Um leið vil ég láta í ljós vonbrigði yfir því að þetta nýframkomna frv. sé nær óbreytt frá því það var lagt fram í fyrra og spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji ekki að nefndar skýrslur kalli á lagabreytingar og þá um leið um breytingar á frv. Ef ekki, til hvers á nefndin þá að að fjalla um skýrslurnar samhliða þessu máli?