Fæðingarorlof

Föstudaginn 13. febrúar 1998, kl. 15:46:33 (3855)

1998-02-13 15:46:33# 122. lþ. 67.6 fundur 265. mál: #A fæðingarorlof# (breyting ýmissa laga) frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur

[15:46]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég svaraði hv. þm. áðan. Áður en að því kemur að stjórnarandstaðan komi að málinu tel ég mikilvægt að launþegar og atvinnurekendur sýni samningsvilja. Þetta er, eins og ég sagði áðan, samningamál. Ég held að það hafi komið fram hver stefna stjórnarandstöðunnar er í þessu máli. Það er gott innlegg í þessa umræðu og ég þakka fyrir það.