Biðlistar áfengis- og eiturlyfjasjúklinga

Mánudaginn 16. febrúar 1998, kl. 15:22:21 (3871)

1998-02-16 15:22:21# 122. lþ. 68.1 fundur 223#B biðlistar áfengis- og eiturlyfjasjúklinga# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 122. lþ.

[15:22]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Eins og ég sagði áðan hefur úrræðum fjölgað mjög og göngudeildarþjónusta fer sífellt vaxandi. Að því er unnið, að auka göngudeildarþjónustuna því að það er hið nútímalega meðferðarform þó að margir þurfi innlagna við. Ef litið er til liðinna ára þá hefur úrræðum fjölgað og fleiri fá meðferð nú en nokkru sinni fyrr.