Heimsmet Völu Flosadóttur

Mánudaginn 16. febrúar 1998, kl. 15:28:53 (3876)

1998-02-16 15:28:53# 122. lþ. 68.1 fundur 224#B heimsmet Völu Flosadóttur# (óundirbúin fsp.), HjÁ
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 122. lþ.

[15:28]

Hjálmar Árnason:

Herra forseti. Ég vil fagna því sérstaklega sem hér kom fram í máli hæstv. menntmrh. um þá stefnumörkun sem kom í kjölfar skýrslunnar sem hæstv. ráðherra vitnaði til. Þá hlýtur það einnig að vera fagnaðarefni að heimsmethafanum Völu Flosadóttur skuli boðið sérstaklega hingað til landsins. Ég ítreka enn og aftur gildi þess að heimsmethafa kvenna skuli vera sýndur þessi sómi því að eins og áður hefur komið fram þá er mikilvægt fyrir ungar konur að fá hvatningu til þess að stunda íþróttir og Vala Flosadóttir hefur sannarlega verið slíkt fordæmi.