Uppboð á skuldabréfum ÞÞÞ á Akranesi

Mánudaginn 16. febrúar 1998, kl. 16:23:17 (3879)

1998-02-16 16:23:17# 122. lþ. 68.92 fundur 220#B uppboð á skuldabréfum ÞÞÞ á Akranesi# (umræður utan dagskrár), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 122. lþ.

[16:23]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti hefur heyrt tillögu hæstv. ráðherra um að forsn. feli óháðum lögfræðingum að segja álit sitt á þeim ágreiningi sem er uppi milli ráðherra og Ríkisendurskoðunar um tiltekin atriði í álitsgerð stofnunarinnar og hvort niðurstöður hennar byggist á réttum lagareglum eða lagalegum forsendum. Forseti vill bregðast strax við tillögunni með því að segja að hann mun taka málið fyrir í forsn. við fyrstu hentugleika.