Guðný Guðbjörnsdóttir:
Virðulegi forseti. Hér er á ferðinni flókið mál sem snýst um nokkur grundvallaratriði þar sem skoðanir stangast á og oft er erfitt að átta sig á hvaða sjónarmið eru rétt. Málið verður þó að útkljá og mér virðist að skoða þurfi eftirfarandi atriði betur.
Í fyrsta lagi er því haldið fram að hagsmuna ríkisins hafi ekki verið gætt þegar ríkið bauð ekki í umrædd bréf þó að þau væru eina trygging ríkisins fyrir greiðslu á skattaskuldum. Einnig er því haldið fram að ekki hafi verið rétt staðið að umræddu uppboði.
Í öðru lagi er Ríkisendurskoðun sökuð um vinnubrögð sem ekki samrýmist góðum stjórnsýsluháttum. Þau eru sögð hafa ,,æ ofan æ truflað eðlilega starfsemi ráðuneyta,`` svo haft sé orðrétt eftir hæstv. fjmrh.
Í þriðja lagi er ljóst að jafnræðisreglu er ekki gætt þegar refsingar og afplánun refsingar eru annars vegar. Stjórnvöld virðast beita sér fyrir því að greiðsla á sektum gangi fyrir greiðslu skattaskulda til að koma í veg fyrir að viðkomandi taki út fangelsisvist. Þetta er gert í einu stærsta skattsvikamáli landsins.
Í fjórða lagi snýst þetta um hugsanleg embættisafglöp viðkomandi sýslumanns.
Í fimmta lagi virðist Ríkisendurskoðun gera þá kröfu að ríkið taki við skuldabréfum fyrir sektargreiðslum sem dómsmrh. fullyrðir að sé ólöglegt athæfi. Fleiri atriði mætti sannarlega tína til í þessu máli en ég læt þessa upptalningu duga.
Virðulegi forseti. Það langalvarlegasta við þetta mál er að mínu mati það að hér standa fullyrðingar gegn fullyrðingum. Því er mikilvægt að málið verði rannsakað enn frekar, ekki síst vegna Ríkisendurskoðunar sem heyrir beint undir þingið. Að sjálfsögðu reyna hæstv. ráðherrar að verja sína pólitísku æru en Ríkisendurskoðun þarf einnig að koma sínum sjónarmiðum að. Þetta er annað málið í nýliðinni viku sem kallar á að nefndir hafi heimild til að rannasaka mál að eigin frumkvæði. Slík breyting á þingsköpum er æskileg en þangað til verður 26. gr. þingskapa að duga og eðlilegt að taka þetta mál upp í efh.- og viðskn.
Fullyrðingar og túlkanir stangast á og því er ekki nóg að hæstv. forsn. taki málið til skoðunar með aðstoð lögfræðinga. Það verður þingnefnd að gera og það sem allra fyrst. Samkvæmt stjórnarskránni kæmi rannsóknarnefnd einnig til greina en ólíklegt er að slík skipan yrði samþykkt miðað við fordæmin, þegar áður hefur reynt á þá stjórnarskrárgrein.