Samskipti dómsmálaráðuneytisins og lögregluyfirvalda

Þriðjudaginn 17. febrúar 1998, kl. 18:22:50 (3959)

1998-02-17 18:22:50# 122. lþ. 69.92 fundur 235#B samskipti dómsmálaráðuneytisins og lögregluyfirvalda# (umræður utan dagskrár), dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur, 122. lþ.

[18:22]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):

Herra forseti. Ræða hv. 11. þm. Reykn. hér áðan í andsvari var mjög í samræmi við málflutning hv. þingmanna jafnaðarmanna á undanförnum missirum. Ég tók það hins vegar fram að ræður þeirra hefðu í dag verið á annan veg og þeir kepptust allir, fyrir utan 11. þm. Reykn., við að halda því fram að í málflutningi þeirra fælist ekki nokkur aðdróttun um misferli í starfi af minni hálfu.