Almannatryggingar

Þriðjudaginn 17. febrúar 1998, kl. 19:05:09 (3974)

1998-02-17 19:05:09# 122. lþ. 69.2 fundur 459. mál: #A almannatryggingar# (endurgreiðsla sérfræðikostnaðar) frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur, 122. lþ.

[19:05]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er keppst að því að ná samningum við alla sérfræðinga. Hvenær þeir samningar nást get ég ekki sagt frekar en almennt er hægt, áður en samningar nást. Ég veit að hv. þm. hefur fullan skilning á því.