Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Hv. þm. kom réttilega inn á að það eru nokkrir læknar sem ekki eru á samningi við Tryggingastofnun og það mun náttúrlega jafnt yfir þá ganga og sjúklinga almennt sem eru hjá læknum sem ekki eru á samningi og vita það fyrir fram að þessir læknar eru ekki á samningi. Þetta hlýtur að vera nægilegt svar fyrir hv. þm.