Fyrirspyrjandi (Össur Skarphéðinsson):
Herra forseti. Þegar núv. ríkisstjórn hóf feril sinn, gaf hún út stefnuyfirlýsingu og í henni segir, með leyfi forseta:
,,Stefnt verður að því að flytja almenna húsnæðislánakerfið frá Húsnæðisstofnun yfir í bankakerfið.``
Í framhaldi af þessu skipaði ráðherra sérstaka nefnd. Hún skilaði af sér í janúar 1996 og lagði til að strax yrði hafist handa við að færa afgreiðslu og alla þjónustu vegna húsbréfakerfisins yfir til viðskiptabanka, sparisjóða og verðbréfafyrirtækja með sérstökum þjónustusamningi.
Framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar, sem sat í nefndinni, skilaði hins vegar séráliti og sagði að hann treysti sér ekki til þess að mæla með þessum flutningi nema athugun sýndi ótvírætt að það væri skynsamlegt og hagkvæmt. Þá má einnig geta þess, herra forseti, að starfsmenn húsnæðismálastjórnar samþykktu áskorun í janúar 1997 til húsnæðismálastjórnar. Þar skoruðu þeir á hana að láta fara fram sérstaka athugun á því hvort einhver ávinningur væri af þessu fyrir viðskiptamenn stofnunarinnar og almenning í landinu.
Eins má geta þess, herra forseti, að í stjórnsýsluúttekt sem gerð var á Húsnæðisstofnun að ósk félmrh. var þessi möguleiki reifaður í niðurstöðunum. Þar sagði, með leyfi forseta:
,,Grundvallarforsenda þess frá rekstrarlegu sjónarmiði hlýtur þó ávallt að vera sú að fjármálastofnanir geti sinnt þessu verkefni með hagkvæmari hætti en Húsnæðisstofnun.``
Svo vill til að hæstv. félmrh. er sammála þessu. Hann sagði í morgunþætti Rásar 2, hinn 30. janúar 1997, þar sem rætt var um húsbréfakerfið, með leyfi forseta:
,,Við hreyfum okkur ekki nema það sé verið að finna ódýrara form á þjónustunni og öruggara.`` Í lok viðtalsins sagði hæstv. ráðherra: ,,Ég vona að það skýrist núna á útmánuðum hvort hægt er að gera þetta með ódýrari hætti heldur en verið hefur, þ.e. með því að færa þetta út í bankana. Það hefur ýmsa kosti ef Húsnæðisstofnun getur út af fyrir sig annast þetta verkefni áfram þannig að þessi þjónusta er ekki kaupandi af bönkunum ef hún er dýrari og óhentugri heldur en við fáum hana í dag.``
Hæstv. félmrh. tók í sama streng í RÚV, í sunnudagsþætti hjá Kristjáni Þorvaldssyni um miðjan febrúar í fyrra, en þar sagði hæstv. ráðherra, með leyfi forseta: ,,Við förum ekki í að færa þetta til bankanna nema það verði leyst með ódýrari hætti fyrir fólkið í landinu, heldur en Húsnæðisstofnun gerir.``
Herra forseti. Niðurstaðan liggur fyrir í úttekt VSÓ á kostum og göllum þess að færa afgreiðslu og þjónustu húsbréfadeildar til annarra fjármálafyrirtækja. Þar segir, með leyfi forseta:
,,Ekki verður séð að mikilvægur árangur náist með því einu að flytja afgreiðslu og þjónustu húsbréfadeildar til viðskiptabanka og sparisjóða. Slík breyting nær skammt í frekari framþróun húsnæðislána og er helsti veikleiki hennar að hún er ekki til þess fallin að lækka kostnað við rekstur húsbréfakerfisins. Þvert á móti mun kostnaður geta aukist.``
Því spyr ég, herra forseti: Hefur ráðherra fallið frá því sem stendur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að flytja húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar yfir til bankakerfisins?