Öldrunardeildin Ljósheimar á Selfossi

Miðvikudaginn 18. febrúar 1998, kl. 14:46:00 (4020)

1998-02-18 14:46:00# 122. lþ. 70.5 fundur 398. mál: #A öldrunardeildin Ljósheimar á Selfossi# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., ÁÞ
[prenta uppsett í dálka] 70. fundur, 122. lþ.

[14:46]

Ásta B. Þorsteinsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég get ekki orða bundist við ræðu hv. þm. Guðna Ágústssonar. Það er enginn sem efast um góðan starfsvilja og þekkingu starfsfólks á heilbrigðisstofnunum, Ljósheimum sem öðrum stofnunum, en það er lágmark að öryggissjónarmið séu í heiðri höfð þannig að starfsfólk sé ekki sett í þær aðstæður að geta ekki bjargað fólki út ef eitthvað kæmi upp á.