Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég beini fyrirspurn til umhvrh. um brunavarnir í Hvalfjarðargöngum. Tilefni hennar er að Brunamálastofnun hefur gert alvarlegar athugasemdir um brunavarnir í Hvalfjarðargöngum. Þar vitna ég til bréfs brunamálastjóra til verkefnastjóra Spalar hf. frá því í september sl. en þar kemur fram, með leyfi forseta:
,,Brunamálastofnun hefur unnið að athugun og úttekt á þeim upplýsingum og vinnu sem unnin hefur verið á sviði brunavarna Hvalfjarðarganga og er niðurstaða þeirrar athugunar sú að mikið vanti á að þær ráðstafanir sem fyrirhugaðar eru séu fullnægjandi. Legið hefur fyrir hjá Vegagerð ríkisins allt frá 1990 krafa undirritaðs og Brunamálastofnunar um að veggöng séu brunahönnuð af til þess hæfum aðila. Brunamálastofnun setti fram kröfu um brunahönnun Hvalfjarðaganga í bréfi til Spalar hf. þann 20. 2. 1996. Eini opinberi aðilinn eða eftirlitsaðili hér á landi sem getur um það dæmt hvort slík hönnun sé viðunandi er Brunamálastofnun. Meðfylgjandi skýrsla Brunamálastofnunar sýnir að enn hefur ekki verið tekist á við brunahönnun Hvalfjarðaganga og skýrsla sú er breska verkfræðifyrirtækið Atkins vann fyrir Spöl hf. er alls ófullnægjandi.``
Í skýrslu þeirri sem brunamálastjóri vísar í hér, kemur fram samandregin niðurstaða Brunamálastofnunar þar sem hún gerir alvarlegar athugasemdir við brunaöryggi í Hvalfjarðargöngum í 13 liðum. Eftir því sem ég best veit, hefur verið farið eftir sumum ábendingum Brunamálastofnunar en ekki öðrum. Nú hefur yfirstjórn brunamála verið flutt til umhvrn. og ég tel mikilvægt að öll tvímæli séu tekin af um að lög um brunavarnir og brunamál nái til Hvalfjarðaganga þrátt fyrir ákvæði í 3. gr. samnings við Spöl hf. Þar er gert ráð fyrir að ákvörðun um gerð og búnað ganga skuli miðuð við að fullnægja norskum stöðlum um tilsvarandi jarðgöng, hvað varðar þægindi, öryggi umferðar og rekstraröryggi.
Af þessum ástæðum er eftirfarandi fyrirspurn sett fram:
1. Telur ráðherra að lög um brunavarnir og brunamál nái til brunavarna í Hvalfjarðargöngum og að Brunamálastofnun ríkisins eigi þar með að hafa eftirlitsskyldu með öryggi brunavarna í göngunum?
2. Mun ráðherra beita sér fyrir því að farið verði eftir athugasemdum og ábendingum Brunamálastofnunar um brunavarnir í Hvalfjarðargöngum, en stofnunin hefur bent á að mikið vanti á að öryggisráðstafanir vegna brunavarna í göngunum séu fullnægjandi?