Fyrirspyrjandi (Sigríður Jóhannesdóttir):
Hæstv. Sjálfsagt mun okkur öllum í fersku minni þeir atburðir er ollu á sínum tíma hingaðkomu Hanes-hjónanna en þó eflaust öllu fremur þau eftirmál sem urðu vegna þess hversu tekið var á máli þeirra hér á landi. Hér er hvorki staður né stund né heldur ástæða til að ræða þann harmleik sem olli því að umrædd hjón sáu sér þann kost vænstan að flýja land sitt. Þegar Bandaríkjamenn reistu svo kröfu um framsal barns þess sem málið snerti brást dómsmálaráðuneytið undraskjótt við. Varð það niðurstaða Hæstaréttar að brotið hefði verið á lögvörðum réttindum hjónanna af ráðuneytinu. Framsalskröfu Bandaríkjamanna á hjónunum var hafnað af Hæstarétti á þeim forsendum að meðalhófsreglu hefði ekki verið fylgt gagnvart þeim og að auki væri meðferð fanga í Arisona með þeim hætti að Íslendingum væri ekki stætt á því að selja fólk undir slíka meðferð vegna alþjóðlegra skuldbindinga. Undir þetta sjónarmið hefur bandaríska alríkisstjórnin raunar tekið með því að höfða mál á hendur umrædds fangelsisstjóra fyrir ómannúðlega meðferð á föngum.
Hanes-hjónin hafa ítrekað boðist til að mæta fyrir rétti í Arizona ef tryggt verði að þau þurfi ekki að sitja í fangelsi við ómannúðlegar aðstæður meðan á málarekstri stendur eða þola niðurlægjandi fangaflutninga innan lands í Bandaríkjunum. Bandaríkin hafa ekki látið svo lítið að svara þeirri málaleitan. Þar sem þau hjónin geta ekki vegabréfalaus fengið neina vinnu að gagni eru þau með þessu sett í óþolandi aðstöðu bjargarleysis. Það virðist svo sem Bandaríkjamenn ætli sér að þreyta þau til uppgjafar með þeim einfalda hætti að virða þau ekki svars.
Í ljósi þessa hefur eftirfarandi fyrirspurn verið lögð fram á hinu háa Alþingi. Samkvæmt fréttum er von á fulltrúum frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu viðvíkjandi máli Hanes-hjónanna og ég hef frétt að sá fundur fari fram á morgun.
1. Getur ráðherra upplýst hvert er erindi þeirra fulltrúa sem samkvæmt fréttum er von á frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu viðvíkjandi máli Hanes-hjónanna og á hvern hátt það tengist þeim?
2. Geta íslensk stjórnvöld á einhvern hátt stuðlað að því að hjónin fái aftur vegabréf sín í ljósi þess að þau hafa ítrekað boðist til að mæta fyrir rétti í Bandaríkjunum án þess að fá nokkrar undirtektir?
3. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að þeim verði veitt landvist hér á landi til frambúðar af mannúðarástæðum jafnvel þótt þau hafi verið svipt vegabréfum sínum?