Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Á síðasta ári óskuðu bandarísk stjórnvöld eftir framsali á bandarískum ríkisborgurum, Connie Jean Hanes og Donald Hanes til Bandaríkjanna þar sem þau voru grunuð um að hafa með ólögmætum hætti numið á brott dótturdóttur konunnar. Í samræmi við lög um framsal sakamanna frá árinu 1984 tóku íslenskir dómstólar það til skoðunar hvort lagaskilyrði fyrir framsali væru fyrir hendi. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu 17. október sl. að ekki væru lagaskilyrði nema að tilteknum skilyrðum uppfylltum fyrir framsali þeirra til Bandaríkjanna. Bandarískum stjórnvöldum var tilkynnt um þá niðurstöðu og framsalskröfu þeirra formlega hafnað af dómsmrn.
Í framhaldi af því komu fram óskir frá bandarískum stjórnvöldum um viðræður við fulltrúa íslenskra stjórnvalda vegna þessa máls svo og um almennar viðræður um samskipti landanna á þessu sviði. Féllst dómsmrn. á slíkar viðræður og von er á fulltrúum frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu hingað til þessa lands og það er rétt hjá hv. fyrirspyrjanda að þau samtöl munu fara fram á morgun.
Varðandi aðra spurninguna er það að segja að ekki eru forsendur til þess fyrir íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir því að bandarísk stjórnvöld falli frá ógildingu vegabréfa eða krefjist þess að ný vegabréf séu gefin út til bandarískra ríkisborgara.
Varðandi þriðju spurninguna er það að segja að útlendingaeftirlitið fjallar á fyrri stigum um umsókn um landvist af mannúðarástæðum eða öðrum sérstökum ástæðum en ákvörðun útlendingaeftirlitsins er unnt að skjóta til dómsmrn. Það er því ekki eðlilegt að æðra stjórnvald láti í ljós skoðun sína á tilgreindu máli áður en það hefur komið til afgreiðslu hjá lægra settu stjórnvaldi.