Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Vegna þeirrar fyrirspurnar sem borin var fram af hálfu hv. 17. þm. Reykv. vil ég ítreka það sem ég hef áður sagt og reyndar hefur komið fram um leið og dómsmrn. afgreiddi erindi bandarískra stjórnvalda þar að lútandi. Dómsmrn. hafnaði kröfu bandarískra stjórnvalda um framsal vegna þess að bandarísk stjórnvöld gátu ekki uppfyllt eða vildu ekki uppfylla þau skilyrði sem Íslendingar setja fyrir framsalinu og Hæstiréttur hefur staðfest. Ég held að þau skilyrði séu algerlega ágreiningslaus, eðlileg og sjálfsögð í máli sem þessu og verður að sjálfsögðu ekki hvikað frá þeim. Ég veit ekki til þess að nokkrum manni hafi komið það í hug. Bandarískum stjórnvöldum hefur verið gerð mjög glögg grein fyrir því hver aðstaðan er í því efni.
Fyrst og fremst vildi ég koma og skýra þetta atriði svo ekki leiki nokkur vafi á því. Að öðru leyti liggja svör mín í upphafi fyrir og ég hef engu við þau að bæta.