Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég flyt litla fyrirspurn til dómsmrh. um löggæslu í austurhluta Reykjavíkur, einkum í Árbæ. Fyrirspurnin er svohljóðandi, með leyfi forseta:
Hver er stefna ráðherra varðandi löggæslu í svokölluðum úthverfum Reykjavíkur, þ.e. einkum í austurhluta borgarinnar, í Grafarvogi, Árbæ og Breiðholti?
Hyggst ráðherra beita sér fyrir því sérstaklega að komið verði til móts við óskir íbúa í Árbæ um betri löggæslu?
Tilefni fyrirspurnarinnar eru ítrekaðar kvartanir íbúa í Árbæjarhverfi yfir ófullnægjandi löggæslu.
Þann 12. janúar sl. skrifuðu forráðamenn flestallra félaga í Árbæjarhverfi til allra þingmanna Reykvíkinga og til dómsmrh. út af þessu máli. Undir það rituðu fulltrúar frá Foreldrafélagi Árbæjarskóla, Foreldrafélagi Selásskóla, Foreldrafélagi Ártúnsskóla, skólastjóri Árbæjarskóla, skólastjóri Selásskóla, skólastjóri Ártúnsskóla, formaður Íþróttafélagsins Fylkis, formaður Framfarafélags Árbæjar og aðstoðarforstöðumaður Ársels. Allir þessir aðilar lýstu verulegum áhyggjum vegna ástandsins í hverfinu. Þetta er 9 þús. manna hverfi og þar er engin regluleg löggæsla eins og var. Það var löggæsla í þessu hverfi og gekk mjög vel hjá henni að vinna að sínum verkum. Hverfalögreglan í Árbæ var gjarnan nefnd sem dæmi um vinsæla hverfalögreglu. Hverfalögreglan í Árbæjarhverfi átti mjög gott samstarf við íbúana, íbúasamtökin, við unga fólkið, við skólana en nú er svo komið að eftir að hverfalögreglan í Árbæ hefur verið lögð niður að ýmsir aðilar eins og t.d. skólastjórar Árbæjarskóla, Ártúnsskóla og Selásskóla, telja að alls konar vandamál hafi farið stórvaxandi í hverfinu. M.a. sagði skólastjóri Árbæjarskóla mér frá því á dögunum að um eina helgi voru rúðubrot í þeim skóla fyrir 500 þús. kr., aðeins eina helgi. Ég er út af fyrir sig ekki að segja að lögregla leysi allan vanda í þessum efnum en ég er að segja að mér finnst að þetta 9 þús. manna hverfi, sem er í raun tiltölulega lokað af sem íbúaheild, eigi rétt á því að fá svipaða þjónustu og önnur hverfi. Þannig er sæmileg þjónusta í Breiðholtshverfi en þó ekki nægilega góð að mínu mati og það hefur verið góð þjónusta að mörgu leyti í Grafarvogshverfi og fer batnandi. Þar hefur lögreglumönnum verið fjölgað úr þremur í fimm. Og af þessum ástæðum öllum, herra forseti, beini ég þessum spurningum til hæstv. ráðherra, bæði varðandi löggæsluna í svokölluðum úthverfum Reykjavíkur, Grafarvogi, Árbæ og Breiðholti og sérstaklega Árbæjarhverfi.