Árni Johnsen (andsvar):
Hæstv. forseti. Þó að hv. þm. Sighvatur Björgvinsson geti sjaldan leynt hroka sínum þá er gott að fá staðfestingu þess að auðlindir þessar ættu að teljast til eigna ríkisins. Ég taldi líklegra að það væri meining málsins en þarna er um klaufalegt orðalag að ræða í frv. sem auðvelt væri að leiðrétta miðað við orð formannsins. Svo ég bendi á skynsamlegra orðalag þá ætti, til að koma í veg fyrir misskilning, að standa: ... þar á meðal málmar, málmblendingar, jarðolía og jarðgas, kol önnur en surtarbrandur eru eign ríkisins. Það er rétt mál og rökrétt í lagasetningunni. Hitt veldur misskilningi að segja ,,kol önnur en surtarbrandur, jarðolía og jarðgas eru eign ríkisins``. Frv. dregur þannig jarðolíu og jarðgas fram með surtarbrandinum. Með því að snúa þessu við þá geta hv. þm. vonandi leiðrétt þetta í nefnd.