Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég lít svo á að allir þessir flokkar hafi samþykkt að fara í umræður um sameiginlega málefnaskrá. Í þeim efnum er það hið eina sem samþykkt hefur verið og ég stend við það. Ég vil ekki sitja undir orðrómi um að búið sé að ákveða meira en reyndin er.